Fréttir

Störf nokkurra þekktra Íslendinga

12.10.1999

Gallup spurði nú þriðja árið í röð um ánægju með störf nokkurra þekktra Íslendinga, forseta Íslands, biskups Íslands, borgstjórans í Reykjavík og forsætisráðherra. Nú sem fyrr eru flestir ánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar, eða 84,5%, en það eru færri en fyrir ári síðan því þá voru 87% ánægð. Rúmlega 79% eru ánægð með störf Karls Sigurbjörnssonar en voru rúmlega 85% í árslok 1998. Næstum 63% eru ánægð með störf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur en 78% voru ánægð með störf hennar í fyrra. Fæstir eru ánægðir með störf Davíðs Oddssonar af þessum fjórum, eða 56%, en meira en 68% voru ánægð með störf forsætisráðherra fyrir ári síðan.

Forseti Íslands

Ekki er munur á ánægju með störf forsetans eftir kyni og aldri eða öðrum grunnbreytum. Forsetinn hefur í öll skiptin sem mælt hefur verið notið mestrar ánægju með störf sín.

Biskup Íslands

Konur eru mun ánægðari en karlar með störf biskupsins, rúmlega 84% kvenna eru ánægð með störf hans en tæplega 76% karla. Ánægja fólks vex með störf Karls eftir því sem það eldist. Þannig er tæplega 61% þeirra sem eru 18-24 ára ánægt með störf hans en tæplega 87% þeirra sem eru 55-75 ára. Nokkrar sveiflur hafa orðið í ánægju með störf biskups. Þannig var einungis rúmlega 41% ánægt með störf Ólafs Skúlasonar þegar spurt var 1997. Ánægja með störf Karls hefur hins vegar verið mun meiri þótt hún lækki nú aðeins á milli ára.

Borgarstjórinn í Reykjavík

Fleiri konur en karlar eru ánægðar með störf borgarstjóra, eða 65% kvenna en tæplega 60% karla. Flestir framsóknamenn eru ánægðir með störf Ingibjargar Sólrúnar, eða rúmlega 83%, næstum 81% kjósenda Samfylkingarinnar, tæplega 74% fylgismanna Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs en 46% sjálfstæðismanna. Ánægja með störf borgarstjóra hafa minnkað talsvert frá því í fyrra en þá var ánægja með störf hans mest, eða 78%.

Forsætisráðherra

Tæplega 62% fólks á aldrinum 18-24 ára eru ánægð með störf Davíðs Oddssonar en ánægjan fer minnkandi eftir því sem fólk eldist þannig að rösklega 51% þeirra sem eru 45-54 ára er ánægt með störf Davíðs. Ánægjan eykst aftur í elsta hópnum 55-75 ára, en tæplega 56% þeirra eru ánægð með störf forsætisráðherra. Tæplega 93% sjálfstæðismanna eru ánægð með störf Davíðs Oddssonar en 58% framsóknarmanna. Á bilinu 18 til 19% stuðningsmanna Vinstri hreyfingarinnar - Græns framboðs og Samfylkingarinnar eru ánægð með störf Davíðs. Ánægja með störf Davíðs er minni nú en fyrir ári síðan en meiri en þegar hún var minnst árið 1997.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share