Fréttir

Hvenær eru aldamót?

12.09.1999

Ekki eru menn sammála um hvenær aldamótin verða. Margir hafa skrifað í blöðin um þetta efni. Gallup lék forvitni að vita hvort almenningur teldi að aldamótin væru um næstu eða þarnæstu áramót. Þessari spurningu er ekki ætlað að skera úr um hvort er hið rétta, aðeins er verið að kanna hug almennings til málsins. Það fer ekki á milli mála að flestir telja að aldamótin séu um næstu áramót, eða tæplega 66% svarenda. Rúmur þriðjungur telur að þau séu um áramótin 2000/2001 en tæplega 1% segir aldamótin vera á öðrum tíma. Það er í meiri mæli yngra fólk sem telur aldamótin verða um næstu áramót, eða tæplega 73% fólks 18-24 ára, en tæplega 53% þeirra sem eru 55-75 ára. Ekki fannst marktækur munur eftir öðrum bakgrunnsbreytum, s.s. kyni, búsetu og tekjum.

Allar fréttir
RSS Button Print Bookmark and Share