Enn eykst fylgi Sjálfstæðisflokks
12.09.1999Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst þriðja mánuðinn í röð, en tæplega helmingur þeirra sem afstöðu taka myndu kjósa hann ef kosningar færu fram nú. Fylgi hins stjórnarflokksins, Framsóknarflokksins, minnkar á hinn bóginn nokkuð, er rösklega 15%. Stuðningur við Vinstrihreyfinguna - Grænt framboð eykst aftur eftir niðursveiflu í síðasta mánuði og myndu 13% greiða henni atkvæði nú. Samfylkingin hefur svipað fylgi og síðast, eða 18,5%. Fylgi Frjálslynda flokksins minnkar þriðja mánuðinn í röð og er nú naumlega 2%. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar nokkuð frá fyrra mánuði, en þá var stuðningur við hana í sögulegu hámarki. Núna má segja að stuðningurinn sé svipaður og hann hefur verið lengst af, eða rúmlega 67%. Rösklega 29% voru óákveðin eða neituðu að svara sem er óvenju hátt hlutfall en tæplega 7% sögðust ekki myndu kjósa eða skila auðu.
Allar fréttir